22. janúar 2003

Hvað er málið með langvarandi þreytu í kálfum? Ég var með svaka hopp tíma á fimmtudaginn síðasta og er búin að vera að drepast síðan, það er eins og kálfarnir séu að detta af mér..... ekki að skilja. Ég fór ekkert á æfingu um helgina í von um að jafna mig í kálfunum en ég er ennþá jafn slæm og ég fæ ekki æfingafrí fyrr en fös í næstu viku.......... ekki að meika.

21. janúar 2003

jæja, allt farið á fullt.... skólinn, dansinn og bara allt saman. Svo er mató á laugardaginn... það verður ekki leiðinlegt. Fór á óvænt tjútt á laugardaginn, kíkti til Söndru vinkonu þar sem hún var með smá gleðskap.... það bara rættist úr því kvöldi og Íris var þunn á sunnudeginum.... ég er ekki búin að vera þunn HEILLENGI!!!!

15. janúar 2003

Jæja, maður er bara byrjaður í skólanum. Ég er í 4 fögum núna og líst bara vel á..... er í markaðsfræði 5, skynjunarsálfræði, þroska og lífstíðarþróun og svo ætla ég að taka aftur Aðferðafræði 2 og hækka mig (ég tók það nefnilega á undan Aðferðafræði 1 og fékk þá bara 6,5 og ég er gráðug og vil hækka meðaleinkunnina ). Svo þarf maður að byrja á BA... nóg að gera ;)

13. janúar 2003

Gleðilegt nýtt ár gott fólk´!!! ég er ekki búin að vera dugleg að blogga í jólafríinu enda er þetta búið að vera í einhverju rugli - allaveganna í minni tölvu. Áramótin voru mjög fín, dúndurpartý hjá Þórhildi og Hannesi. 3. jan var svo farið aftur að djamma (ekkert frí) en þá var langþráð kennarapartý hjá Birnu Björns, geggjað gaman. Þetta var teiti sem búið var að undirbúa í langan tíma þannig að maður missti af afmælismatnum hans Hannesar, en það er ekki hægt að gera allt :( Helgin núna var svo bara róleg. Vorum að passa hjá foreldrum hans Gunna. Þau voru að fara erlendis yfir helgi og systir hans var að fara út í 6 mán þannig að við settumst að í Kópavoginum yfir eina helgi hjá Arnari Boga. Það var bara mjög fínt. Fengum Berglindi og Gumma í heimsókn á laugardagskveldinu og var þá kjaftað, borðaðir ostar, drukkið rauðvín og plönuð utanlandsferð sem við ætlum að fara í sumar, ekki leiðinlegt :)