9. nóvember 2005

sæl á ný

Ekki búin að vera dugleg að tjá mig á blogginu.... margt búið að vera í gangi.. Í októberbyrjun kenndi ég á Fusion Fitness ráðstefnunni, svakalega gaman..... átti víst afmæli í gær og er orðin 26 ára ÚFFFFFF!!! Unglist er á morgun og eru stelpurnar mínar að sýna, mjög flott hjá þeim...... er ennþá að leita að íbúð!!

Partýtröll....hummm


Partítröll

Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.
Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.

Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.

Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.

Hvaða tröll ert þú?