14. apríl 2008

Germanía part 1

Jæja, þá er best að skrifa eitthvað skemmtilegt um Þýskalandsferðina góðu og eflaust þá pósta einhverjar skemmtilegar myndir með því... Byrjum á Degi 1:

Það var mæting kl 5:40 upp í skóla föstudagsmorguninn 28.mars. Allir voru nú frekar myglaðir eftir alltof lítinn svefn. Við keyrðum beint yfir til Hamburg þar sem við hittum starfsfólk í markaðsdeild Unilever. Þau sögðu okkur margt og mikið um starf þeirra sem markaðsfólk - það klingdi í nemendahópnum við þessa kynningu: "ok, svo að þetta er það sem við erum kannski að fara að vinna við - very interesting". Eftir Hamborgar(a) ferðina var keyrt beint til Berlín. Spennandi borg, Berlín, skítug og hrá en um leið sjarmerandi.... við komum þá að hostelinu okkar... það var bátur, við áttum að gista næstu 5 nætur í húsbáti og voru herbergin TINY. Ég, Marta og Laufey vorum þrjár í fjagra manna herbergi (neðri og efri koja og svo eitt SEMI tveggja manna rúm). Ég tók neðri kojuna, Marta og Laufey tóku tveggja manna rúmið, og töskurnar okkar fengu efri kojuna.

Um kvöldið fór allt liðið, 32 hræður, saman á mjög töff Lounge - Loungemenningin er mikil í Þýskalandi, skemmtistaðir með kósý, kúl sófum, lounge músik og kokteilum - þar fengum við mjög skemmtilega matarsamsetningu, vítnamskan mat og tyrkneskar/ítalskar samlokur - mjög international...

Dagur tvö var nú vægast sagt MJÖG viðburðaríkur!! við byrjuðum á því að kíkja aðeins í búðir í Berlín - girls have to do what girls have to do!

Ekki mikið verslað þar til við duttum inn í GEDVEIKA second hand búð. Ó já, skó deildin var stærri en allar GS skó búðirnar heima á Íslandi saman!! En þar sem maður er fátækur námsmaður þá keypti ég mér nú bara EITT par... but it is very pretty :) Eftir það var farið í FRITZ music tour, leiðsögumaður fór með okkur í rútu um Berlín og benti okkur á helstu áhugaverðu staðina í Berlín sem tengjast nútímatónlist sbr. hvar Iggy pop bjó og var alltaf uppdópaður, hvar Nick Cave bjó og var alltaf pissfullur, hvar David Bowie bjó og var alltaf uppdópaður... mjög spennandi tónlistarsaga í Berlín. En eftir það fengum við annars konar tónlíst í æð, óperu - fórum í þýsku óperuna að sjá Carmina Burana - to sum up: kórsöngur, dansstelpa í fjötrum, dansstelpa breytist í trúð, dansstelpa málar alla sína "helstu" líkamshluta og misþyrmir ruslatunnu, feitur karl í bar hlustar á karl með konurödd syngja um og selja hænur, dansstelpa er þjónustustúlka á bar en breytist svo í gleðikonu, dansstelpan strippar, dansstelpa á pínu thongi tælir feita kallinn og leikur við sjálfa sig meðan lítil börn labba fram hjá, hálfnakta dansstelpan drepst nærðum því en verður þá drottning.......DJÖF..HELV..KJAFTÆÐI!!

Núna þurftum við eitthvað gott að borða og KOKTEIL - eins og við má búast þá varð þetta fyrsta djammkvöldð - fólk verður að jafna sig eftir svona lífsreynslu. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld fyrir utan smá fótaþreytu í sumum.... huhummm... jamm, það er hægt að segja "I have been in many peoples shoes", Marta og Laufey klæddust svaðalega flottum skóm sem voru víst ekki alltof góðir til lengri tíma litið þannig að það var soldið mikið um skóskipti þetta kvöld til að auðvelda þeim lífið - merkilegt að einhver annar en ég hafi getað notað mína íní míní skó.

Tvær í geðshræringu eftir mjög svo spes sýningu - en að borða besta Shanghai mat ever.....

STORIES FROM GERMANY TO BE CONTINUED

8. apríl 2008

Svo er það Germanía... ja bitte schön

Var að koma heim úr 10 daga study trip í Þýskalandi - er að safna saman kröftum til að skrifa um þessa frábæru ferð en hér koma nokkur stikkorð - og frekari lýsingar koma síðar

Rúta, Unilever, Berlín, second hand stores, Fritz music tour, Carmina Burana, shanghai matur, skóskipti, kokteilar, túristi, coka cola, coke light með green tea, rúta, Dresden, trabantsafarí, Audi, snobb, rúta, Munich, BJÓR, túristi, hent út af sushi stað, rokk og ról, þreyta, Dachau útrýmingarbúðirnar, rúta í 14 klst, home sweet home...

Set líka inn myndir síðar...

Örstutt um páskana

Get ekki sagt að ég hafi verið öflug í blogginu núna.... en finnst nú að ég ætti að minnast aðeins á páskana. Páskana sem við ákváðum að eyða í Aarhus, í stað þess að fara heim á klakann. En við fengum góða heimsókn um páskahelgina en hún Þóra mín kom og eyddi helginni með okkur. Það var BARA gaman að fá hana í heimsókn :)

Við fórum á listasafn, út að borða, út að skemmta okkur, shopping, á hestbak, spiluðum, horfðum á video, tarketpractice, fórum að hjóla, fórum í traditional danskan páskamat í Dönsku sveitasetri - which was gorgeous... Jamm, það var mikið gert þessa stuttu helgi, og náðum við að fá sitthvað af hverju, afslöppun, skemmtun, útivist, íslenskum páskamat með öllu tilheyrandi, og svo danskan páskamat... mjög fínir páskar í Aarhus :)

Hér eru nokkrar myndir: