27. maí 2005

BA í sálfræði nálgast!

Við skiluðum inn BA ritgerðinni okkar á miðvikudaginn - "Leikhúsmarkaðurinn: viðhorf og mat leikhúsgesta Borgarleikhússins". Hryllilega montnar! Á laugardaginn verður svo farið á Apótekið og haldið upp á þennan merka áfanga og svo 25. júní mun ég útskrifast með BA í sálfræði jahú!!

19. maí 2005

Íslenska þjóðin klæðist sorgarklæðum

Við fórum ekki áfram í úrslitin í Eurovision. Landinn situr nú heima og skilur ekkert, Selma er svo æði, af hverju vildi Evrópa hana ekki og af hverju valdi Evrópa frekar litlu Lettana sem sungu rammfalskt um að stríðið væri ekki búið.... Nú verður lítið um öll þau eurovision partý sem búið var að plana um helgina - kannski verður þetta bara fyrir vikið mesta fylleríshelgin þar sem allir drekka sorgum sínum og setja út á allt sem hinar þjóðirnar eru að gera í Eurovision. Íslendingar munu syrgja þetta næstu vikuna en svo verðum við farin að tala um eitthvað annað - þetta er ekki heimsendir, nálægt því, en þó ekki heimsendir. Af hverju vildi Evrópa ekki Selmu okkar, sáu þeir ekki hvað hún er mikið talentabúnt.... well, Íslendingar klæðast kannski svörtu á laugardaginn, syrgja tónlistarsmekk Evrópubúa.

3. maí 2005

Dansi dansi dúkka mín!!

Yndislegt að vera búin að skila inn uppkastinu að BA, þvílíkur léttir. Erum samt engan veginn búnar með hana en það er aðallega fínpússun eftir og nóg af henni. Nú er maður bara í hálfgerðu fríi næstu daga þangað til maður fær ritgerðina RAUÐA til baka :) Hummm, hvað á maður að gera við tímann sinn........... einhverjar hugmyndir?