Eins og það sé stríðsástand heima á klakanum
Þetta eru búnar að vera svo súrealískar tvær vikur. Ég er búin að sitja fyrir framan tölvuna alla daga, með músina tilbúna á refresh takkanum, að bíða eftir nýjustu fréttunum. Á sama tíma með smá hnút í maganum um að það komi einhver svaðaleg frétt sem mun breyta lífi manns að eilífu. Auðvitað eru þessar tvær vikur búnar að hafa svaðaleg áhrif á líf mitt og allra í kringum mig.. en eins og staðan er núna þá er þetta ok :)
Soldið sérkennilegt að vera Íslendingur í útlöndum, manni líður oft eins og það sé bleikur fíll í herberginu sem enginn vill tala um þegar maður er að hitta skólafélaga frá öðrum löndum. Á meðan við Íslendingarnir tölum ekki um neitt annað okkar á milli.... jammm, krepputalið er efst á baugi hjá okkur í Danmörku þessa dagana. Við bíðum bara eftir ákveðnum fréttum og vonum að þær séu jákvæðar... ef þessar fréttir koma svo neikvæðar þá munum við ekki hafa efni á því að flytja aftur til Íslands í bráð - but we will survive :) Soldið skrýtið að ein stofnun geti virkilega haft svona afdrifarík áhrif á líf manns, hvort maður verði að vera búsettur í DK um skeið eða hvort maður geti flutt aftur til fjölskyldu og vina þegar námi lýkur.
En um daginn þá fórum við stelpurnar í skvísu djamm - þýðir ekkert annað en að sleppa sér svona af og til :) - hér eru myndir
1 Ummæli:
já það er non stop talað um kreppuna í dag hehe... en já mega gott að skella sér á skvísudjamm. við erum að fara vestur á föstudaginn í frænkupartýið, ég tek myndir svo þú getir séð hvað fór fram meðal þessara klikkuð frænkna hehehe
Skrifa ummæli
<< Heim